Beint í efni

Allt sem þú þarft til að reka netverslun

Kauply er heildstætt kerfi: verslun, vörur, pantanir, markaðssetning, greining og öryggi á einum stað. Hér er allt sem kerfið gerir í dag.

Verslun sem lítur út eins og þú vilt

Yfir 20 útlit
Frí útlit og nokkur premium – forsíðuborði, vörukort, karfa og síðufótur, allt stillanlegt.
Síðusmiður
Byggðu forsíðu og efnissíður úr tilbúnum einingum, með forskoðun og útgáfustýringu.
Blogg og greinar
Skrifaðu efni beint í stjórnborðinu – með SEO-stillingum á hverri grein.
Eigið lén og SSL
Tengdu þittlén.is – vottorð er gefið út sjálfkrafa, ekkert vesen.
Leit með síum
Leit með flokkasíum, röðun og endalausri skrunun – innbyggt, engin viðbót.
Fjöltyngd verslun
Þýddu vöruheiti, lýsingar og slóðir – viðskiptavinurinn velur tungumál efst á síðunni.
Fjölmynt
Verð birt í fleiri gjaldmiðlum með gjaldmiðlavali í versluninni.
Valmyndastjórnun
Stjórnaðu haus- og fótvalmyndum án þess að snerta kóða.
Myndasafn í WebP
Allar myndir eru sjálfkrafa unnar í hraðvirkt WebP í öllum stærðum.

Vörustjórnun sem heldur í við þig

Vöruafbrigði
Stærðir, litir og útfærslur – hvert afbrigði með eigið verð, SKU og birgðir.
Birgðastjórnun
Móttaka, leiðréttingar og viðvaranir um lágar birgðir í rauntíma.
Vörumerki og eiginleikar
Skipulagðu vörur eftir vörumerkjum og skilgreindu eigin eiginleika.
Vörupakkar
Settu saman pakka úr mörgum vörum – með gjafainnpökkun ef þú vilt.
CSV inn- og útflutningur
Flyttu vörulistann inn úr CSV – líka beint úr Shopify – og út aftur hvenær sem er.
Magnaðgerðir
Flokkaðu, verðleggðu og merktu margar vörur í einni aðgerð.
Gjafakort
Gefðu út gjafakort með gildistíma – innlausn í greiðsluferlinu.
Umsagnir
Vöruumsagnir með „staðfest kaup“-merki fyrir traust sem selur.
Strikamerki
SKU og strikamerkjastjórnun fyrir vörur og afbrigði.

Frá pöntun að afhendingu

Pöntunarferli
Fylgdu hverri pöntun frá greiðslu í gegnum tínslu, sendingu og afhendingu.
Hlutaafgreiðsla
Sendu það sem er til strax og afganginn seinna – kerfið heldur utan um allt.
Endurgreiðslur
Heilar eða að hluta, með ástæðuskráningu og þaki á endurgreiddri upphæð.
Sendingar
Dropp með sjálfvirkri bókun og rakningarnúmeri. Pósturinn og sótt í verslun eru sendingarleiðir með þínu verði – rakningarnúmer er skráð við sendingu.
Kortagreiðslur
Rapyd tengist í stjórnborðinu: lyklar eru prófaðir við vistun, prófunarhamur fyrst og raunhamur þegar þú ert tilbúin(n).
Greiðslutengill
Búðu til pöntun og sendu greiðslutengil eða reikning – fyrir síma- og samfélagsmiðlasölu.
Pöntunarpóstar
Staðfestingar- og sendingarpóstar á tungumáli viðskiptavinarins.
VSK-uppgjör
Stillanleg VSK-þrep eftir löndum og uppgjörsskýrsla fyrir skil.
Svikagreining
Pantanir geta verið áhættumetnar og grunsamlegar merktar til yfirferðar.
Yfirgefnar körfur
Sjálfvirkur endurheimtupóstur með öruggum tengli á körfuna.
Heimilisfangaleit
Íslensk heimilisföng fyllast sjálfkrafa út í greiðsluferlinu (Staðfangaskrá).
Sala á staðnum (POS)
Afgreiðslukerfi með snertiskjá – búðin og netverslunin deila vörum, birgðum og uppgjöri.

Verkfærin sem fá fólk til að koma aftur

Viðskiptavinaskrá
Yfirlit yfir alla viðskiptavini með síum, merkingum og kaupsögu.
Aðgangar viðskiptavina
Innskráning með einskiptiskóða, pöntunarsaga og heimilisfangabók.
B2B-fyrirtækjaaðgangar
Fyrirtæki sækja um aðgang – sérverð, greiðslufrestir og PDF-reikningar.
Afsláttarkóðar
Prósentu- eða upphæðarafslættir með gildistíma og notkunarmörkum.
Útsölur og herferðir
Tímasettar útsölur á völdum vörum og flokkum – með herferðamælingum (UTM).
Kauptu X, fáðu Y
BOGO-tilboð reiknuð sjálfkrafa í körfunni.
Póstlistasöfnun
Skráning á forsíðunni, áskrifendalisti í stjórnborðinu og CSV-útflutningur.
Vöruvaktin
„Láta vita“ þegar varan kemur aftur – viðskiptavinir fá póst þegar birgðir koma aftur.
Gjafaskilaboð
Viðskiptavinir skrifa kveðju í greiðsluferlinu – hún fylgir pöntuninni alla leið.

Sérð hvað skilar peningum – ekki bara heimsóknum

Innbyggð vefgreining svo þú getir sleppt Google Analytics – og af því að hún býr í versluninni sér hún það sem Google sér ekki: tekjurnar.

Yfirlit sem byrjar á tekjum
Tekjur, pantanir, meðalkarfa og viðskiptahlutfall – allt borið saman við fyrra tímabil og uppfært í rauntíma.
Tekjur eftir uppruna
Það sem hver rás skilar í raun – gestir, pantanir og krónur frá leit, samfélagsmiðlum og tilvísunum.
Söluferlið
Frá heimsókn að kaupum í fimm þrepum – sérð nákvæmlega hvar viðskiptavinir detta úr ferlinu.
Innsýn
Kerfið bendir sjálft á það sem skiptir máli: vara sem margir skoða en enginn kaupir, yfirgefnar körfur, breytingar milli vikna.
Leitarorð viðskiptavina
Það sem fólk leitar að í versluninni – líka það sem finnst ekki: eftirspurnin sem þú ert að missa af.
Lifandi yfirlit
Sérð hverjir eru í versluninni núna – síður, tæki og lönd í rauntíma.
Umferðargreining
Heimsóknir, síðuflettingar, lönd og tæki – með síum og samanburði milli tímabila.
Engar vafrakökur
Nafnlausir gestir eru aldrei raktir milli daga og vefgreiningin sendir ekkert til þriðja aðila – hún býr hjá versluninni þinni.
CSV-útflutningur
Sala, vörur, viðskiptavinir, umferð og tekjur eftir uppruna – allt út í CSV hvenær sem er.

Gervigreind sem vinnur fyrir þig – frá fyrsta degi

Engin uppsetning, enginn API-lykill. Gervigreindin er innbyggð og virk um leið og þú opnar verslunina – knúin af Claude. Þú sérð alltaf hvað hún kostar.

Stýra — gervigreindin sem stýrir með þér
Hún fylgist með búðinni allan sólarhringinn og segir þér hvað skiptir máli í dag: vörur sem vantar lýsingu, eftirspurn sem þú missir af, birgðir að klárast.
Söluvænar vörulýsingar
Ekki bara lýsing á myndinni – texti sem selur vöruna, á íslensku sem hljómar íslensk. Byggt á staðreyndum vörunnar.
Myndatextar (alt-textar)
Gervigreindin skrifar lýsingu á hverri mynd – betra aðgengi fyrir skjálesara og hærra í leitarvélum.
SEO-textar
Meta-titlar og -lýsingar skrifaðar sjálfkrafa fyrir hverja vöru.
Sjálfvirk flokkun
Stingur upp á flokkum og vörumerkjum út frá vörunni – þú samþykkir.
„Passar vel með“
Gervigreindin stingur upp á tengdum vörum fyrir vörusíðuna – virkar líka fyrir splunkunýja verslun.
Þýðingar
Þýddu vöruheiti, lýsingar og slóðir á önnur tungumál með einum smelli.
Þjónustuspjall með gervigreind
Svarar viðskiptavinum út frá þekkingu verslunarinnar þinnar – allan sólarhringinn (valkvætt).
Gagnsær kostnaður
Sérð nákvæmlega hvað gervigreindin kostar. Viltu frekar nota eigin lykil? Það er hægt.
MCP-aðgangur
Tengdu eigin AI-aðstoðarmann við verslunina – yfir 50 aðgerðir gegnum örugga API-lykla með heimildastýringu.
AI-uppsetning
Lýstu versluninni þinni í stofnferlinu og kerfið stillir sig sjálft.

Kerfi sem þú getur treyst

Starfsmannaaðgangar
Hlutverk og heimildir – hver starfsmaður sér bara það sem hann á að sjá.
Aðgerðaskrá
Hver gerði hvað og hvenær – allar aðgerðir skráðar.
Lykilorðalaus innskráning
Einskiptiskóðar í pósti – ekkert lykilorð til að gleyma eða leka.
Dulkóðun persónuupplýsinga
Viðkvæm gögn viðskiptavina dulkóðuð í geymslu með sérlykli fyrir hvern viðskiptavin.
Eigin gagnagrunnur
Hver verslun fær eigin einangraðan gagnagrunn og viðkvæm gögn eru dulkóðuð með lykli verslunarinnar.
Sjálfvirk afrit
Samfelld afritun á öllum gagnagrunnum með prófaðri endurheimt.
Vefkrókar
Fáðu tilkynningar í önnur kerfi með HMAC-undirrituðum vefkrókum.
Greining án þriðja aðila
Vefgreiningin verður til og býr í versluninni – hún sendir ekkert til Google eða annarra greiningarþjónusta.
GDPR-verkfæri
Gögn viðskiptavina má flytja út og þeim má eyða varanlega að beiðni – innbyggt í kerfið.
Væntanlegt

Í vinnslu með fyrstu verslununum

Þetta er ekki komið enn – við byggjum það með fyrstu verslununum og segjum satt frá því.

Engar dagsetningar lofaðar – biðlistinn fær fréttir fyrst.

Fleiri greiðsluleiðir
Teya, Netgíró og Síminn Pay eru væntanleg – engin tenging við þau er komin enn. Kortagreiðslur í gegnum Rapyd eru tilbúnar núna.
Viðbætur fyrir forritara
Opið viðbótakerfi ofan á vefkróka og API sem eru þegar til staðar.

Búðin þín. Krónurnar þínar.

Ég vil fá boð

Þú smíðar verslunina frítt og borgar fyrst þegar þú opnar. Ekkert kort og engin skuldbinding.